Thursday, May 14, 2009

Þegar önn klárast

Á morgun er önnin búin.

Þá á ég voðalega lítið eftir af mastersnámi mínu. Sorglegt en satt.

Hefur liðið alltof hratt.

Ég fer svo sem örugglega að læra eitthvað meira. Dunda mér við kennsluréttindin eða eitthvað sem mér dettur í hug að læra betur.

Á morgun skila ég síðasta verkefninu í bili. Fer svo í leikhús kl. 20.00 að horfa á Friðjón frumsýna Ó þú aftur. Fer svo í vorteiti með Hagnýtri menningarmiðlun. Svo geri ég vafalaust eitthvað skemmtilegt í framhaldinu. Það þarf að fagna hverjum áfanga með stæl.

Svo er það Hornafjörður á sunnudaginn og þar verð ég í allt sumar. Virkilega er það nú ljúft og gott.

2 comments:

  1. kemur þú með flugi venan?
    -Valdís

    ReplyDelete
  2. Nei ég kem keyrandi með Sigga Bogga og Magga á morgun...voða nice

    ReplyDelete